Toghlerar frá Injector Door
Umboðsaðilar á Íslandi : Injector Ísland ehf
Sími: 511 4410 Fax: 511 4404
helgi@injector.is
Byltingarkenndir toghlerar hafa gert Injector Door að leiðandi fyrirtæki í framleiðslu toghlera.
Þessir umhverfisvænu, eldsneytissparandi og stöðugu toghlerar eru auðveldir í notkun og hafa skapað fyrirtækinu góða markaðshlutdeild, alls staðar þar sem hlerarnir hafa verið kynntir.
Byrjunin
Á tímabilinu 1996 - 1999 unnu þeir Larsen bræður, Lars og Helgi að þróun á toghlera sem þeir höfðu einkaleyfi á. Til grundvallar notuðu þeir loftaflsfræðilega útreikninga og tilraunir. Toghlerarnir skiluðu fullkomlega væntingum þeirra bræðra á eftirfarandi atriðum:
- Eldsneytissparnaði, sannanlega allt að 15%
- Stöðugleika
- Auðveldir í notkun og góð ending
- Umhverfisvænir
- Minna slit og skemmdir
Framleiðsluvörur
- Flottrollshlerar
- Botn/Flottrollshlerar
- Toghlerar (botntroll)
Árið 2001 framleiddi Injector heimsins stærstu toghlera fyrir norskan rækjutogara, F/v Remøy. Hvor hleri 19 m2.
Á þessu ári voru afgreiddir 17 m2 toghlerar til nýjasta togara Royal Greenland F/v Akamalik.